Nova Klubburinn Hf.OMXICE: NOVA

Nova Klúbburinn hf.: Niðurstöður aðalfundar þann 21. mars 2024

· Issued by Nova Klubburinn Hf.

Aðalfundur Nova Klúbbsins hf. var haldinn í dag, fimmtudaginn 21. mars 2024.  

Sjálfkjörið var í stjórn félagsins og er skipan hennar óbreytt frá því sem var.  

Í stjórn félagsins sitja:  

  • Hrund Rudolfsdóttir  
  • Jón Óttar Birgisson  
  • Jóhannes Þorsteinsson  
  • Magnús Árnason  
  • Sigríður Olgeirsdóttir 

Stjórn hefur skipt með sér verkum og var Sigríður Olgeirsdóttir endurkjörin formaður stjórnar

Einnig var sjálfkjörið í tilnefningarnefnd félagsins fyrir næsta ár, en nefndina skipa, eins og áður:  

  • Margrét Kristmannsdóttir  
  • Thelma Kristín Kvaran  

Samþykkt var tillaga stjórnar um lækkun hlutafjár félagsins sem nemur 133.310.000 kr. að nafnvirði, en að teknu tilliti til lækkunarinnar nemur heildarhlutfé félagsins 3.683.966.464 kr. að nafnvirði. 

Niðurstöður aðalfundarins má að öðru leyti sjá í meðfylgjandi fundargerð. 

Attachment

  • Nova Klúbburinn_fundargerð AGM_2024

Earlier from Nova Klubburinn Hf

All Nova Klubburinn Hf news releases